|
Fimmtudagur, 02 Febrúar 2012 14:48 |
|
Fimmtudagur til fróðleiks er fyrirlestraröð í boði ÞNA annan fimmtudag í mánuði kl. 12:15 – 12:45. Fimmtudaginn 9. febrúar mun Sveinbjörn Jónasson flytja erindið „Markaðssetning fjar- og dreifmenntunar á Austurlandi.
Námskeið framundan
- Ron Davis, Aftur í nám , hefst 6. febrúar kl. 17:00 á Höfn. - Skráning
- Íslenska fyrir útlendinga 1. stig, kynningarfundur í Kreml, Neskaupstað 9. febrúar kl. 18:00: - Skráning
- Spænska, hefst 13. febrúar á Höfn. - Skráning
- Víravirki, 18-19. febrúar í Neskaupstað - Skráning
- Ljósmyndanámskeið, hefst 25. febrúar á Egilsstöðum - Skráning
Námskeiðin „Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum“ og „Sterkari starfsmaður“ hefjast á Egilsstöðum og Reyðarfirði þegar þátttaka er næg. Einnig er verið að safna þátttakendum á námskeið í Excel 1 og á hraðlestrarnámskeið Hraðlestrarskólans.
Nánari upplýsingar í síma: 470 3800. |
|
|
Kvöldvaka í Kreml - "Staðhættir í Norðfirði 1940 - 1960" |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 31 Janúar 2012 16:41 |
|
Starfstöð ÞNA í Neskaupstað stendur fyrir kvöldvökum í Kreml, á miðvikudagskvöldum í vetur. Fjallað verður um efni tengt byggðinni í Norðfirði og mannlífinu. Kvöldvökurnar verða óformlegar samkomur og eru kvöldvökugestir hvattir til að koma með innlegg og það verða vonandi líflegar umræður.
Miðvikudaginn 1. febrúar kl. 20 sýnir Guðmundur Sveinsson myndir úr Skjala- og myndasafni Norðfjarðar. Annars vegar staðháttamyndir frá Neskaupstað og hins vegar skopmyndir Sveins Vilhjálmssonar af meðlimum karlakórsins frá árinu 1962.
Boðið verður upp á einfaldar kaffiveitingar.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis, þökk sé styrk frá SÚN |
|
Endurlöggildingarnámskeið vigtarmanna. |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 26 Janúar 2012 17:27 |
Neytendastofa heldur námskeið til að endurlöggilda réttindi vigtarmanna í fjarfundi hjá Þekkingarnetinu á Vopnafirði þann 6.febrúar n.k. Verð námskeiðsins og löggildingarinnar er 22.500 . Hægt er að senda námskeiðið út á fleiri stöðum en þá bætist við kostnaður vegna starfsstöðvar. Nánari upplýsingar í síma 470 3850. Ef vel gengur er möguleiki að við fáum til okkar grunnnámskeið vigtarmannna í fjarkennslu í maí.
|
|
Fræðslustjóri að láni til Sveitarfélagsins Hornafjarðarnafjarðar |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 26 Janúar 2012 16:59 |
|
Í gær, þann 25. janúar skrifuðu Sveitarfélagið Hornafjörður, Þekkingarnetið og Sveitamennt fræðslusjóður undir samstarfssamning sem felur í sér að Sveitamennt útvegar Sveitarfélaginu ráðgjafa að láni fram á vormánuði. Hlutverk ráðgjafans er að leiða vinnu stýrihóps sem skipaður er fulltrúum starfsmanna sveitarfélagins. Áformað er að gera viðhorfakönnun og greiningu á þörfum um menntun og fræðslu fyrir almenna starfsmenn sveitarfélagsins og gera fræðsluáætlun til lengri tíma. Ragnhildur Jónsdóttir ráðgjafi Þekkingarnetsins leiðir vinnuna en fleiri ráðgjafar munu koma að henni.
Markmiðið með verkefninu er:
- Að fyrir liggi fræðsluáætlun til lengri tíma sem miðar að því að auka almenna og faglega þekkingu starfsmanna. Fræðsluþættirnir byggi á vali og forgangsröðun starfsmannanna sjálfra sem og stjórnenda stofnananna.
- Að hvetja starfsmenn til að afla sér fagmenntunar á því sviði sem þeir hafa áhuga á.
|
|
Fimmtudagur, 26 Janúar 2012 15:58 |
|
Kvöldvaka verður í Kreml miðvikudaginn 1. febrúar. Guðmundur Sveinsson sýnir ljósmyndir úr mynda og skjalasafni Neskaupstaðar. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Næstu námskeið
- Enska 1 – talmál, hefst 1. febrúar á Reyðarfirði. Ókeypis fyrir félaga í AFLi - Skráning
- Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum, kynningarfundur á Egilsstöðum 2.feb kl. 20 - Skráning
- Matreiðsla á grænmetisfæði, 4. feb. í Neskaupstað, Skráning
- Framandi matarmenning, 4. feb á Höfn, Skráning
- Excel 1 byrjendanámskeið, hefst 6. febrúar á Reyðarfirði. ókeypis fyrir félaga í AFLi - Skráning
- Aftur í nám, hefst 6. febrúar á Höfn - Skráning
- Sterkari starfsmaður, hefst 13.febrúar á Egilsstöðum - Skráning
- Spænska, hefst 13. febrúar á Höfn - Skráning
- Fjölvirkjar, matur- menning- heilsa hefst 14.febrúar á Egilsstöðum - Skráning
- Enska 2, hefst 21.febrúar á Egilsstöðum - Skráning
Við minnum á Endurlöggildingarnámskeið vigtarmanna sem verður í fjarfundi 6. febrúar á Vopnafirði. Hægt verður að opna fyrir fjarfund á fleiri stöðum ef þess er óskað. Uppl. í síma 4703850.
Nánari upplýsingar í síma 4703800 |
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |